Hæ hæ og hó hó
Fyrsti í aðventu og það er nákvæmlega ekki neitt jólalegt hérna heima hjá mér.. en guð minn góður
hvað ég á eftir að skreyta og hafa það nice eftir 15.des.. geti eiginlega ekki beðið :)
Hlakka líka svoooo mikið til að fara að gera íbúðina okkar fína og flott og flytja svo í hana í janúar :) bara gaman :) svo miklu skemmtilegra að vera í eigin íbúð heldur en leiguíbúð... miklu meira hægt að gera í sinni eigin.. HUGE garður sem fylgir íbúðinni.. hlakka til að gera eitthvað flott í honum í sumar :)
En til 15.des er ekkert annað en sögu bækur og sögubækur og sögubækur... en tek smá pásu 4.des og mæti í afmæli aldarinnar hjá Fjólu vinkonu :)
Jæja farin í bækurnar...
Þið sem eruð ekki í skóla njótið þess í botn og þið sem eruð í skóla... it will soon be over :)
Sunday, November 28, 2010
Monday, November 1, 2010
Jólaskreytingar....
langar mikið að fara að jólaskreyta... en það er eiginlega bara útaf því að ég á að vera að læra.. skrifa ritgerð um menningarleg áhrif hernámsins á Ísland.. alveg skemmtilegt efni og er með alveg fuuuullt af góðum heimildum.. en það er bara þannig að þegar maður á að vera duglegur að læra þá langar manni að gera allt annað.. og það sem mig langar mest að gera er að jólaskreyta.. en eftir að hafa talað við tvær vinkonur mínar sem bentu mér á að það er nú bara byrjun nóv (1.nóv og stórasta systir mín á stór afmæli í dag) þá ákvað ég að láta það bíða um tíma. ákvað bara að skoða flottar jólaskreytingar og blogga í staðinn :P metnaður í hámarki hérna :) sótti um í Tækniskólanum áðan.. allir að vera með fingers crossed fyrir mig :D
er ekki bara málið að skella sér í sturtu og sjá hvort metnaðurinn hellist ekki yfir mig :) veit annars einhver hver hægt er að fá eins og stóran skammt af metnaði og aga? :)
Friday, October 29, 2010
H&M here I come :D
Monday, July 26, 2010
Leitin af hinum eina sanna...
maskara.. that is.. hef lengi verið að leita af fullkomna maskaranum.. sem að lengir, þykkjir og klessist ekki.. hef ekki enþá fundið hann.. hef lent á mörgum sem hafa ekki staðist kröfurnar.. (þetta er bara eins og leitin af hinum eina sanna manni :p ) Hérna fyrir neðann eru þeir sem ég hef prófað og ekki verið nógu ánægð með...
Loreal double extension.. var búin að prófa þennann svarta..
áhvað að sjá hvað þessi rauði hefði fram fyrir hann..
þetta er alveg fínn maskari.. lengir en þykkir ekki
og það sem mér finnst alveg mega pain við maskar er
þegar maður þarf að ná honum af með einhverji sérstakri
gráðu af heitu vatni... 38° heitt vatn á að nota til að ná þessum af..
nenni þessu ekki alveg :)
Maybelline coloassal volum express.. átti víst að vera
drauma maskarinn.. þannig að ég hljóp úti búð og keypti
hann... mistake.. var ekki að lengja neitt og þykkti ekkert
svakalega mikið.. heyrði einhverntímann af því að það var
einhver að kvarta yfir lyktinni af honum.. var ekkert að
pirra mig.. :)
Chanel Inimitable mascara.. helv.. dýr.. hélt nú að hann myndi virka
eitthvað sökum þess hve dýr hann er.. en nei.. lengir alveg en finnst
hann ekki þykkja neitt.. finnst útlitið á honum samt mjög flott :)
Loreal Double extension... annar svona tvískiptur.. lengdi alveg en
fannst hann klessast svolitið.. og svo er ég ekki alveg að nenna
þessu tvískipta dæmi.. ekki hægt að sameina þetta í
hinum eina sanna :)
Lancome L'extreame.. keypti þennann í fríhöfninni.. en skiptir
svo sem engu máli.. er ekki hinn eini sanni.. lengir alveg en þykkir ekki..
finnst hann líka svolitið of blautur..
En svona hefur leitin mín af hinum eins sanna verið..
og leitin heldur áfram.. ef að þú veist um einhvern sem
að stenst þessi silyrði mín... að lengja og þykkja og klessast ekki
þá ENDILEGA láta mig vita :D
knús
svo sem engu máli.. er ekki hinn eini sanni.. lengir alveg en þykkir ekki..
finnst hann líka svolitið of blautur..
En svona hefur leitin mín af hinum eins sanna verið..
og leitin heldur áfram.. ef að þú veist um einhvern sem
að stenst þessi silyrði mín... að lengja og þykkja og klessast ekki
þá ENDILEGA láta mig vita :D
knús
Monday, July 12, 2010
Asos
Ég mæli svooo mikið með asos.com.. flott síða með flottum fötum...
og það besta er að þeir senda til Íslands.. ég er að bíða eftir fyrstu
Svolitið flottur.. ætlaði að panta hann.. en hann er víst ekki
sendur til Íslands... unfair :(
sætur sumarkjóll.. væri alveg til í einn svona :)
Eins og ég segi þá mæli ég alveg með því að panta af þessari síðu,
ég er með alveg nokkrar flíkur og töskur í bið.. loves it :)
Getur svo reiknað endanlegt verð á
http://www.tollur.is/upload/files/calc_netverslun%2820%29.htm
Snilld :)
Eins og ég segi þá mæli ég alveg með því að panta af þessari síðu,
ég er með alveg nokkrar flíkur og töskur í bið.. loves it :)
Getur svo reiknað endanlegt verð á
http://www.tollur.is/upload/files/calc_netverslun%2820%29.htm
Snilld :)
Saturday, July 10, 2010
Elie Saab
Jæja fyrsta bloggið í langann langann tima :)
langar bara að hafa smá blogg.. ætla bara að skrifa um allt og ekkert.. koma með myndir af því sem mér finnst flott.. hvort sem það er tengt tísku, innannhúshönnunn eða bara eitthvað allt annað :)
Jæja fyrsta bloggið ekki langt.. en ég kem með önnur sem verða lengri :)
goodbye
langar bara að hafa smá blogg.. ætla bara að skrifa um allt og ekkert.. koma með myndir af því sem mér finnst flott.. hvort sem það er tengt tísku, innannhúshönnunn eða bara eitthvað allt annað :)
Jæja fyrsta bloggið ekki langt.. en ég kem með önnur sem verða lengri :)
goodbye
Subscribe to:
Posts (Atom)